Hvað er í gangi?

Nú eru kvikmyndahúsin búinn að hækka verðið hjá sér aftur og kenna launahækkunum um. Sem er reyndar skiljanlegt þar sem þeir gátu ekki kennt Dollaranum um núna en krónan hefur einmit verið að styrkjast gagnvart honum. Sem ætti auðvitað að að þýða lækkun á miðaverði, en eins og almenningur hefur eflaust áttað sig á þá er menn mun fljótari að hækka verð út af gengisbreytingum frekar en að lækka það.

Ég vil líka vekja athygli á því sem ég var að átta mig á í gær, en það er að nú á allt að hækka, ekki bara bensín, bíó og matur heldur einnig allar vörur í apótekum, t.d. var ég að kaupa umbúðir í gær á sár sem ég er með, það stóð í hillunni að þær ættu að kosta 169 kr. sem er ásættanlegt, en þegar ég kom á kassann þá var verðið búið að breytast í tæpan 300 kr.! þar sem afgreiðslustúlkan var almennileg þá lét hún mig borga gamla verðið en það eru lög að verðið á hillunni stendur, þannig ef þú lesandi góður verður var við misræmi af hilluverði og þegar kemur á kassann þá átt þú réttinn.

Svo lítið skondið að það sé hægt að hækka launin hjá manni og allt annað um leið og kenna svo launahækkuninni um!


mbl.is Verð bíómiða að hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Josiha

Laun hækka alltaf eftir áramót og þess vegna hækkar allt líka. Þannig að þessi launahækkun er bara djók.

En rétt hjá þér með hilluverðið. Það er það sem gildir. Verst hvað margt afgreiðslufólk veit það ekki...

Josiha, 7.4.2008 kl. 13:08

2 Smámynd: Fjóla =)

ég vona þín vegna að þú hafir hamstað svolítið af þessum plástrum.. nýta þér verðið.. því að það er ekki ósjaldan sem þú meiðir þig..!! alltaf að skera þig og e-ð.. starfið þitt ætti að teljast sem áhættustarf..;)

Fjóla =), 7.4.2008 kl. 14:53

3 Smámynd: mojo-jojo

maður þarf oft að hafa vit fyrir afgreiðslufólki, og reyndar hamstraði ég ekki, því það er það sem ,,the man" vill að maður gerir. Mér finnst að maður eigi að líta öðruvísi á hlutina. T.d. ef bensín fer hækkandi, ekki fylla á auka bensín brúsa, heldur nota bílinn minna. Ef matur hækkar, þá verður maður bara að reyna vera praktískari, elda meira, kaupa minna ruslfæði og tilbúnum mat, og með bíóverðið, þá ætla ég að fara á myndir sem ég fæ afslátt á, fara líka sjaldnar í bíó og smygla nammi og gosi inn

mojo-jojo, 7.4.2008 kl. 16:36

4 identicon

En hvernig græða þeir þegar flesta nýlega myndir eru bara að fylla hálfan sal?

Nefna bara dollarann þegar hann hækkar. Nú er verðið helmingi hærra en þegar dollarin var 120 kr. Tölur ljúga ekki! 

Geiri (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 19:46

5 Smámynd: Josiha

Hehehe... hafði fyrirlesturinn sem ég hélt á miðvikudaginn/fimmtudaginn um sparnað sem sagt einhver áhrif?

Josiha, 7.4.2008 kl. 23:58

6 Smámynd: Anna Sigga

Góður Jói í kommenti 3 :) þú ert snjallur maður :D :D

Anna Sigga, 8.4.2008 kl. 09:43

7 Smámynd: GK

Íslendingar ættu kannski að fara fram á launalækkanir...

GK, 9.4.2008 kl. 00:04

8 identicon

reglurnar eru ekki svona... Það var áður fyrr að það sem stóð gilti en það er búið að breyta því! Ef þú getur sannað fyrir viðkomandi að öll( eða meirihlutinn) stykkin séu ekki á þessu verði þá stenst kassaverðið. Þetta er gert til að fólk sé ekki að skipta á verðmiðum til að fá eitthvað ódýrara!

Stebbi (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 08:40

9 Smámynd: Josiha

Stebbi minn. Ertu ekki að grínast með þetta komment? Það er aldrei þannig að það stendur bara einhver tala fyrir neðan vöruna. Það er alltaf strikamerkið með. Og strikamerkið er það sama og er á vörunni. Ég geri það t.d. alltaf þegar mér finnst e-ð skuggalega ódýrt, að bera saman strikamerkið á vörunni og strikamerkið sem er á verðmiðanum. Ath. hvort það passi ekki örugglega saman. Þannig að jú, víst gildir þessi regla.

Josiha, 9.4.2008 kl. 23:59

10 identicon

já strikamerkið segir verðið, en t.d ef þú ferð og kaupir jakka einhverstaðar og það stendur allstaðar 9.990 á öllum jökkunum. verðmiðinn segir það, en nema einn því hann hefur verið óvart merktur 1990. Þú tekur jakkann ferð með hann a kassann, og hann stimplast inn 9990 þá geturu ekki sagt. Hey ég á að fá hann á 1990. Reglan virkar þannig...ef ég sem starsmaður get sýnt þér að þetta sé bara ein mannleg mistök og þetta sé eini jakkinn með þessu verði. það er oft verðlimmiði a strikamerkinu

stebbi (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 19:24

11 identicon

Þetta er tekið af síðu neytendastofnunar. getur flett þessu sjálf upp...

"

Rangt verð á sölustað

  • Almenna reglan er að verslanir eigi að selja vörur og þjónustu á því verði sem kemur fram á verðmerkingum. Þetta gildir þó ekki ef sjá má, eða það ætti að sjást, að um mistök er að ræða. Það gildir heldur ekki ef röng verðmerking er ekki á ábyrgð fyrirtækisins heldur hafi til dæmis annar viðskiptavinur breytt verðmerkingu eða fært vörur til.
  • Almennt fylgja verslanir því að neytendur fái vörur á því verði sem kemur fram í hillu sé ósamræmi á milli þess verðs og verðs í afgreiðslukassa, þar sem neytendur velja vöruna á grundvelli verðmerkingarinnar.

Þannig að það er ekki regla, en við gefum fólki oftast verðið sem er á vörunni.... en við erum ekki skyldug;)

stebbi (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 19:36

12 Smámynd: Josiha

Já okei, ég var ekki að hugsa um fötin sem eru bara með einhverjum verðmiða. Var meira að hugsa um matvöruna sko  Mér finnst einmitt þessi regla ekki eiga rétt á sér þegar er verið að tala um föt. Ef þau eru bara merkt með einum litlum miða. Þá er líka svo auðvelt að fólk misnoti þetta, setji viljandi vitlausan miða á flíkina til að fá hana ódýrari. Bottom line-ið er allavega að mér finnst þessi regla ekki ná yfir föt

Josiha, 11.4.2008 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Tónlistarspilari

Band of Horses - The Funeral

Höfundur

mojo-jojo
mojo-jojo
Ég er svarthvítur með hatt og sést bara á hlið

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Verklegumyndirnarmínar063[1]
  • hilton
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband