Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Kjellinn !

Paparazziarnir létu mig ekki í friði á Hilton opnuninni Smile, þarna náði ég rétt svo að fela mig á bak við hitalampa. (ég er gaurinn í miðjunni)

hilton


Mín hlið á málinu ... sú rétta

Er Gummi Þroskaheftur?

Við bræðurnir erum búnir að standa í ströngu frá því í gærkvöldi. Það byrjaði í gær þegar við vorum að fara úr sveitinni í rvk. Þá tók ég uppá því að bomba fýlusprengjum í bílnum og læsti rúðunum þ.a. að Gummi gat ekki opnað gluggana. Gummi dó ráðalaus, enda var lyktin slík. Ég ákvað að opna hurðina uppá gátt á fullri ferð til þess að fá frískt loft. Gummi fór að grenja.

Síðan þegar í við vorum komnir í Rvk, þá ætlaði Gummi að hefna sín og hljóp á undan mér inn í íbúðina og læsti mig úti. Þegar á þessu stóð kom Heiðar að okkur og gat ekki annað en hlegið að Gumma. Enda sjaldséð að maður í háskóla skuli láta svona. Síðan hleypti hann mér inn, enda orðinn skíthræddur um afleiðingar gjörða sinna. Um leið og ég komst inn tók ég eina sniðglímu á hann og henti honum í gólfið og sló hann með blautum sokk. Svo pissaði Gummi í sig og steig í hlandið af sjálfum sér og varð votur. Hann fór svo hnuggin í háttinn.

Síðan ætlaði ég að stríða honum í dag þegar hann kom úr skólanum og þykjast loka hann úti, hann var svo hræddur um að þurfa að standa úti og verða meira votur, enda hafði hann fengið nóg af því deginum áður, að hann faldi sig í görðum og fór krókaleiðir í átt að blokkinni okkar og endaði svo með að detta og meiða sig og grenja eins og smástelpa, ég reyndi að hugga hann en hann reyndi þá að hrækja á mig. Þar sem Gummi var ekki lengur húsum hæfandi þá ákvað ég að geyma hann úti. Eftir dágóða stund þá grátbað hann mig um að hleypa sér inn og sagðist sjá eftir öllu saman. Ég ákvað að fyrirgefa honum eins og góður kristinn maður og hleypti honum inn. En þá reyndist Gummi vera úlfur í sauðagæru og tók hann sængina mína og henti henni út. Ég gat ekki fært neinar varnir gegn þessu enda alveg hlessa á þessu öllu saman. Síðan bjó ég til banana shake handa Gumma sem hann vildi ekki drekka og fór hann því í vaskinn.

Ef einhver trúir ekki þessari sögu þá svara ég þeim með tilvitnun úr Simpsons: 
"You belived his cock and bull story"


Tónlistarspilari

Band of Horses - The Funeral

Höfundur

mojo-jojo
mojo-jojo
Ég er svarthvítur með hatt og sést bara á hlið

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Verklegumyndirnarmínar063[1]
  • hilton
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband