20.12.2007 | 18:58
Eigum við að ræða það hvað ég var duglegur...
...hélt ekki.
En jú ég held að ég hafi aldrei verið jafn duglegur á frídegi eins og ég var í dag. Vanalega sef ég allan daginn og horfi á sjónvarpið og heng í tölvunni en dagurinn í dag var öðruvísi.
Reyndar svaf ég allt of lengi enda var ég ekki búinn að plana að vera duglegur, síðan fór ég að dunda mér við uppvask sem ég hafði unnið mér inn frá kvöldinu áður þar sem ég gerði upp á bak í pro á móti Gumma. Eftir dágott uppvask fór ég að pakka inn jólagjöfum, þó þær hefðu ekki verið margar þá var nú nógur erfitt/leiðinlegt að pakka þessu inn.
Þegar ég er í þann veginn að vera búinn að gera allt sem ég hafði planað að afreka yfir daginn, hringir bjallan. Úti stendur Guðrún, eldri kona sem býr fyrir ofan mig, hún spyr mig hvort ég eigi ekki eitthvað af þessu drasli sem liggi í sameigninni. Ég kveð svo vera ekki og afsaka mig um leið fyrir allt draslið sem liggi enn eftir mig út í garði á veröndinni. Og ég segi við hana um leið að ég sé á leiðinni að henda þessu (not) og sé bara að leita mér að kerru til að flytja þetta.
En þá skeður svo lítið óvænt. Guðrún segist eiga stóra kerru bak við hús og ég megi fá hana lánaða ef ég tek líka draslið sem er sameigninni. Núna var að hrökkva eða stökkva. Hvort átti ég að ljúga að ég hefði ekki tíma í þetta og halda áfram letidegi eða átti ég að vera svo góðar að fara með draslið. Og viti menn, ég veit ekki hvort það séu jólin eða þá að ég hafði enga afsökun, en ég tók saman allt draslið sem var svona 100-200 kg án gríns og hendi því út í Sorpu og borgaði meira að segja fyrir það heilar 600 kr.
Allt í allt mjög sáttur með daginn hjá mér og mér er bara farið að hlakka til jólanna
...smá viðbót:
Einkunirnar mínar úr öðrum bekk:
Kalda Eldhúsið: 10
Franska: 9
Hráefnis og matreiðsluaðferðir: 8
Súpur, sósur og eftirréttir: 9
FFM (vinnubókin): 9
Matreiðsla 107: 8
Matseðlafræði: 9
Matreiðsla 101: 8
Meðaleinkunn 8,75
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:24 | Facebook
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Tenglar
Fróðlegt og fræðandi
- Minn Geymur tékkið á þessu
- Freisting fyrir kokkana
- Fótbolti.net
- Árborg FC
- leikjanet
- Rauðahúsið
Aðrir
- Kristó
- Hrund
- Lilja bloggar einu sinni í mánuði
- Ragna Kristín bloggar annan hvern mánuð
- Tantra fjóla systir og vinkonur
- Godfellas dauð síða
- Action.is
- Godfellas
- Daði Már
- A-liðið
Fjölskyldan
Eldri færslur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
DUGLEGUR!!!
Á ekkert að segja frá hvað þú fékkst góða einkunnir???
Annars get ég ekki beðið eftir að fá ykkur heim í sveitina! Það sökkar big time að hafa ykkur ekki hérna.
Josiha, 20.12.2007 kl. 21:11
Búinn að bæta því inn
mojo-jojo, 20.12.2007 kl. 21:25
GEÐVEIKAR einkunnir! Ég er ÝKT stolt sko! Til hamingju með þetta!
Josiha, 20.12.2007 kl. 21:53
Flottar einkunnir, til hamingju! Líka rosa duglegur... ertu samt ekki feginn að vera búinn að fara með ruslið?!? létt! umm annars bara... Gleðileg jól
Anna Sigga, 22.12.2007 kl. 10:32
takk fyrir það, gott að vera laus við draslið, og gleðileg jól
mojo-jojo, 24.12.2007 kl. 04:12
já þú varst duglegur að nenna að henda þessu...
...flottar einkunnir hjá þér!
Guðmundur Marteinn Hannesson, 24.12.2007 kl. 14:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.