7.2.2007 | 14:32
Ég hef fengið nóg ...
... af íslenska réttarkerfinu. Það er alveg með ólíkindum hvað menn komast upp með hér á landi, gaurinn sem var svona illa laminn hafði, svo mér skilst, ekkert gert þessum þrem annað en að þekkja gaurinn sem þeir voru að leita að.
Síðan er hann laminn svo illa að áverkar hans hefðu getað leitt til dauða ef hann hefði fundist seinna í Heiðmörkinni. Og hver er refsinginn 3 mánuðir í fangelsi og svo þurfa þeir að borga fórnarlambinu e-n smá pening. Alveg makalaust, ekki furða að fórnarlambið hafi verið hikandi að fara til lögreglu þar sem það er bara rétt svo slegið á puttana á þessum peyjum og svo geta þeir farið og hefnt sín aftur.
... spurning hvort maður ætti að taka lögin í sínar hendur og gefa þeim eitthvað vont að borða!
Svo er annað, það er verið gagnrýna kompás fyrir að vera dómstóll götunar og að þeir hafi hlaupið á sig með því að birta myndir af e-m kalli sem kom svo í ljós að hafði kannski verið vitleysa. En þetta er það sem gerðist óhjákvæmilega þegar dómskerfið er svona hræðilega gallað og afbrotavænt, dómstóll götunar tekur við, sem ég sjálfur er ekki alltof hrifinn af.
En til þess að koma í veg fyrir að það gerist þá verður að taka þetta dómskerfi í gegn og herða refsingar!
Dæmdir í fangelsi fyrir líkamsárás og frelsissviptingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:33 | Facebook
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Tenglar
Fróðlegt og fræðandi
- Minn Geymur tékkið á þessu
- Freisting fyrir kokkana
- Fótbolti.net
- Árborg FC
- leikjanet
- Rauðahúsið
Aðrir
- Kristó
- Hrund
- Lilja bloggar einu sinni í mánuði
- Ragna Kristín bloggar annan hvern mánuð
- Tantra fjóla systir og vinkonur
- Godfellas dauð síða
- Action.is
- Godfellas
- Daði Már
- A-liðið
Fjölskyldan
Eldri færslur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, þetta er algjört rugl! Það er verið að segja manni óbeint með þessum dómi (og öðrum sambærilegum) að svona hegðun sé bara OKEI!
Josiha, 7.2.2007 kl. 17:52
sammála! Dómskerfið er orðið svo mikið djók að það er ekki fyndið!
ég vil fá að sjá alvöru refsingar, amk 5-10 ár fyrir svona lagað ef ekki meir. þá ættu menn að hugsa sig tvisvar um áður en þeir framkvæma slíkann verknað.
Síðan með þessa barnaperra. Alveg ótrúlegt hvað þeir fá stuttann dóm. þeir eru fá 2-3 ár í mestalagi, og það fyrir gróf kynferðis afbrot.
Shit ég verð svo reiður þegar ég heyri af þessu bull dómum.
Guðmundur Marteinn Hannesson, 7.2.2007 kl. 19:22
Farðu með þennan fyrirlestur inn á Litla-Hraun! :-)
GK, 7.2.2007 kl. 19:53
Heyr, heyr!
Það er alveg skelfilegt hvernig er tekið á barnaníðingsmálum.... ekki nóg með að dómar þeirra séu alltof vægir þá eru þeir jafnvel mildaðir enn frekar. Er það ekki eiginlega bara hálfgert samþykki á svona hegðun?!? Mér finnst þetta allavega viðbjóðslegt dómskerfi.
Það eru helst þeir sem svíkja peninga e-s staðar sem fá að kenna á því, ekki aumingja nauðgararnir og ofbeldismennirnir.
Anna Sigga, 7.2.2007 kl. 22:01
bara pirrandi.. eins og gaurinn sem braut inn til okkar í Smáratúninu.. hann var víst búin að reyna nauðga einhverju gellum og naugða annari.. og svo braust hann inn til okkar og fleirri hús í götunni.. og svo var hann dæmdur í 3 mán fangelsi... og fékk náglunarbann á self.. fór austur og reyndi að ræna 4 ára stelpu... og núna er hann fluttur aftur á Selfoss (býr á skólavöllunum og er víst alltaf á kaffi krús.. hann var víst líka á birginu..!!)
Fjóla =), 8.2.2007 kl. 11:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.