3.7.2007 | 00:36
Er ekkert heilagt?
Það fór eitt alveg svakalega í taugarnar á mér þegar ég sá kynninguna á komandi dagskrá Stöðvar 2. En það var kynningin á Simpsons þáttunum sem þeir ætla að halda áfram að sýna, en núna með íslensku tali! eru menn ekki að grínast með þetta, samkvæmt mínum bókum þá ættu talsettar teiknimyndir að vera ætlaðar krökum sem frá 1-13 ára en ekki þáttum ætluðum eldri krökkum og fullorðnum, ég meina það er t.d. blótað í þáttunum og svo horfa Bart og Lisa á teiknimyndir um kött og mús sem skiptast á að drepa hvort annað.
Finnst allavega að sá snillingur sem tók þessa ákvörðun á Stöð 2 hefði átt að ritskoða þessa þætti betu og finna sér eitthvað annað starf. Höfum það samt alveg á hreinu að þetta eru með uppáhaldsþáttunum mínum, en ef ég ætti krakka þá vildi ég ekki að þeir væru að horfa þetta fyrr en um 10-12 ára aldur og þá á ensku.
En já það er langt síðan að maður bloggaði síðast og stefni ég ekki á neina aukningu í bráð þar sem maður hefur nóg annað að gera yfir sumarið, eða það er allavega nóg sem maður ætti að vera að gera, eins og að vera úti í sólinni en ekki inni í tölvunni þunnur . Hvað er svo að frétta af manni, tja örugglega margt en það helsta er það að ég er búinn að kaupa mér íbúð á Langholtsveginum með Gumma bró, fáum hana afhenta í ágúst-september, þvílíkt gott að vera búinn með mest af lánaveseninu og núna þarf maður bara að hafa áhyggjur af því að borga af þessu öllu, en það ætti að reddast, svo er ég búinn að snoða mig en ef því miður engar myndir þar sem ég nenni ekki að taka myndir.
Ekkert fleira að sinni.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 00:38 | Facebook
Tónlistarspilari
Færsluflokkar
Tenglar
Fróðlegt og fræðandi
- Minn Geymur tékkið á þessu
- Freisting fyrir kokkana
- Fótbolti.net
- Árborg FC
- leikjanet
- Rauðahúsið
Aðrir
- Kristó
- Hrund
- Lilja bloggar einu sinni í mánuði
- Ragna Kristín bloggar annan hvern mánuð
- Tantra fjóla systir og vinkonur
- Godfellas dauð síða
- Action.is
- Godfellas
- Daði Már
- A-liðið
Fjölskyldan
Eldri færslur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ísold horfir á Simpson og á 2 dvd með Simpson....er ég þá ekki góð móðir ??
En ég hélt að það ætti ekki að talsetja nema einn þátt... og svo myndina ?? kannski er ég eitthvað að missklja, kemur í ljós.
Eigðu gott sumar...hittumst í haust. Er nefnilega að fara til Tyrklands eftir 8 daga og á ekki von á því að hitta þig fyrir þann tíma.
Mæja (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 20:26
jú það er rétt hjá þér Mæja, það á bara að talsetja þennan eina þátt og svo myndina.
Fyrir þá sem kjósa að horfa á þáttinn með ensku tali geta gert það um leið og sá með íslensku tali lýkur.
Stöð 2 ætla sko að sýna fyrst með íslensku tali og síðan með ensku tali, því þetta er einhver afmælisþáttur.
Menn verða að hafa staðreyndir á hreinu áður en menn fara að hrauna yfir hina og þessa, ekki satt bróðir sæll
Guðmundur Marteinn Hannesson, 3.7.2007 kl. 22:23
ok sorry, kannski hljóp ég aðeins á mig, fyrst það er bara þessi eini þáttur.
Góða ferð Mæja, Steini og Ísold, kannski maður heimsæki ykkur eitthvað áður.
...og nei þú ert ekki slæm móðir
mojo-jojo, 3.7.2007 kl. 22:40
Ég ætlaði að kommenta en hætti við því að þú kommentar aldrei hjá mér!
Josiha, 4.7.2007 kl. 12:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.