Er ekkert heilagt?

Það fór eitt alveg svakalega í taugarnar á mér þegar ég sá kynninguna á komandi dagskrá Stöðvar 2. En það var kynningin á Simpsons þáttunum sem þeir ætla að halda áfram að sýna, en núna með íslensku tali! eru menn ekki að grínast með þetta, samkvæmt mínum bókum þá ættu talsettar teiknimyndir að vera ætlaðar krökum sem frá 1-13 ára en ekki þáttum ætluðum eldri krökkum og fullorðnum, ég meina það er t.d. blótað í þáttunum og svo horfa Bart og Lisa á teiknimyndir um kött og mús sem skiptast á að drepa hvort annað.
Finnst allavega að sá snillingur sem tók þessa ákvörðun á Stöð 2 hefði átt að ritskoða þessa þætti betu og finna sér eitthvað annað starf. Höfum það samt alveg á hreinu að þetta eru með uppáhaldsþáttunum mínum, en ef ég ætti krakka þá vildi ég ekki að þeir væru að horfa þetta fyrr en um 10-12 ára aldur og þá á ensku.

En já það er langt síðan að maður bloggaði síðast og stefni ég ekki á neina aukningu í bráð þar sem maður hefur nóg annað að gera yfir sumarið, eða það er allavega nóg sem maður ætti að vera að gera, eins og að vera úti í sólinni en ekki inni í tölvunni þunnur Blush. Hvað er svo að frétta af manni, tja örugglega margt en það helsta er það að ég er búinn að kaupa mér íbúð á Langholtsveginum með Gumma bró, fáum hana afhenta í ágúst-september, þvílíkt gott að vera búinn með mest af lánaveseninu og núna þarf maður bara að hafa áhyggjur af því að borga af þessu öllu, en það ætti að reddast, svo er ég búinn að snoða mig en ef því miður engar myndir þar sem ég nenni ekki að taka myndir.

Ekkert fleira að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ísold horfir á Simpson og á 2 dvd með Simpson....er ég þá ekki góð móðir ??

En ég hélt að það ætti ekki að talsetja nema einn þátt... og svo myndina ??  kannski er ég eitthvað að missklja, kemur í ljós.

Eigðu gott sumar...hittumst í haust. Er nefnilega að fara til Tyrklands eftir 8 daga og á ekki von á því að hitta þig fyrir þann tíma.

Mæja (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 20:26

2 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

jú það er rétt  hjá þér Mæja, það á bara að talsetja þennan eina þátt og svo myndina.

Fyrir þá sem kjósa að horfa á þáttinn með ensku tali geta gert það um leið og sá með íslensku tali lýkur.

Stöð 2 ætla sko að sýna fyrst með íslensku tali og síðan með ensku tali, því þetta er einhver afmælisþáttur.

Menn verða að hafa staðreyndir á hreinu áður en menn fara að hrauna yfir hina og þessa, ekki satt bróðir sæll

Guðmundur Marteinn Hannesson, 3.7.2007 kl. 22:23

3 Smámynd: mojo-jojo

ok sorry, kannski hljóp ég aðeins á mig, fyrst það er bara þessi eini þáttur.

Góða ferð Mæja, Steini og Ísold, kannski maður heimsæki ykkur eitthvað áður.

...og nei þú ert ekki slæm móðir

mojo-jojo, 3.7.2007 kl. 22:40

4 Smámynd: Josiha

Ég ætlaði að kommenta en hætti við því að þú kommentar aldrei hjá mér!

Josiha, 4.7.2007 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Tónlistarspilari

Band of Horses - The Funeral

Höfundur

mojo-jojo
mojo-jojo
Ég er svarthvítur með hatt og sést bara á hlið

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Verklegumyndirnarmínar063[1]
  • hilton
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 376

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband