Gat skipt um spegil sjálfur ...

...eða svona næstum því. Ég fékk sem sagt endurskoðun á bílinn minn um daginn þar sem kom í ljós að það þurfti að skipta um hliðarspegil, hljóðkút og hemlunarljós að aftan.

Ég ætlaði svo að vera karl í krapinu og skipta sjálfur um spegilinn og peruna, en það byrjaði ekki vel, þar sem skrúfgangurinn brotnði úr gamla speglinum þegar ég var að losa hann og sat eftir á boltanum.

Svo ég fékk Ara Pál frænda minn, sem átti leið hjá, til þess að hjálpa mér. Og eftir smá maus hafðist það. Síðan lét ég skifta um hljóðkútinn og átti þá bara peruna eftir, en klukkan var orðinn fimm mínútur í fjögur og alveg að fara að loka í frumherja.

Svo ég dreif mig þangað og var búinn að ætla mér að skipta um peruna á meðan ég væri að bíða eftir skoðun, en svo kom í ljós að ég komst beint að og hafði þá engann tíma til að skipta um peru (maður sem hefði skipt um peru áður hefði líklega náð því Smile), en kallinn í skoðuninni gaf mér smá breik og lét það eiga sig, þannig að þetta reddaðist allt saman á endanum.

En hvernig er það er ekki alltaf djamm á Þrettándanum eða er það vitleysa í mér?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það gæti orðið eitthvað skrall í bænum :D

kv. Hrundsí

Hrund (IP-tala skráð) 6.1.2007 kl. 00:15

2 Smámynd: María Dóróthea Jensdóttir

Gerið allt vitlaust á Selfossi

María Dóróthea Jensdóttir, 6.1.2007 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Tónlistarspilari

Band of Horses - The Funeral

Höfundur

mojo-jojo
mojo-jojo
Ég er svarthvítur með hatt og sést bara á hlið

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Verklegumyndirnarmínar063[1]
  • hilton
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 405

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband