Þvottavélin mín

Núna um daginn þá gaf pabbi mér glænýja þvottvél sem ég valdi sjálfur í Elko, fínasta vél, maður getur stillt delay á henni en þá seinkar maður þvottinum, maður gæti t.d. sett á 6 tíma delay rétt áður en maður fer að sofa og svo þegar maður vaknar morgunninn eftir þá er vélin nýbúinn að þvo, þvílík snilld!

En eitthvað vafðist það fyrir mér að ganga rétt frá vélinni, allavega þá fattaði ég ekki að taka eitthvað járnstykki af sem er aftan á vélinni, með þeim afleiðingum að allt fór í steik þegar ég var að þvo mína fyrstu vél. Það sem gerðist var að vélinn hoppaði og skoppaði út um allt þvottarhús og reif meira segja aðrar vélar með sér og tók niðurfallið í sundur og hvaðeina Grin.

En ég fattaði ekki strax hver vandinn væri, hélt bara að ég hafði balenserað hana eitthvað vitlaust. Síðan þegar þetta skeður aftur, þá ákveð ég að hringja í Elko og spurjast aðeins út í þetta og þá segja þeir mér þetta með járndraslið, en þá þurfti maður auðvitað að fara sér ferð út í næstu bensínstöð til þess að kaupa skiptilykil til þess að losa þetta drasl. En vélin er allavega kominn í ,,lag" núna.

Annars er það að frétta af mér, að ég og Kalli erum búinr að mála og koma flestum húsgögnum fyrir, ég er kominn með internet, en internetleysið var farið að gera mann brjálaðan. Svo er maður á leiðinni á Fed le grand á miðvikudaginn og er meira að segja búinn að kaupa miða, en það tók mig tvær ferðir út í kringlu þar sem ég á mjög erfitt með að læra það að allt lokar kl 18.00 þar.

Ekkert fleirra að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Josiha

Hahaha...
...fyndið blogg
Færðu e-ð páskafrí? Ertu búinn að redda laugardeginum e-ð?

Josiha, 1.4.2007 kl. 22:24

2 Smámynd: mojo-jojo

Nei og Nei

mojo-jojo, 1.4.2007 kl. 23:12

3 Smámynd: Anna Sigga

 Það var mikið!! Til hamingju með nýju vélina, fall er fararheill ;)

Anna Sigga, 1.4.2007 kl. 23:14

4 identicon

Gaman að því...að vinna og vinna þegar aðrir eru í fríi... En svona er kokkurinn einu sinni.

Góða skemmtun á miðvikudaginn.

já og takk fyrir okkur á laugardaginn....geðveikt gott....ég er en slefandi

Mæja (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 22:17

5 Smámynd: GK

Sjitt maður. Það er nú nógu erfitt fyrir þig að reyna að læra hvenær þjónustuaðilar loka á Selfossi... öll þessi kompaní sem þú þarft að skipta við í Reykjavík, sjitt... Ein regla: Hættu að hringja í mig og spurja hvenær þetta og þetta lokar. (T.d. kl. 19:30 á laugardagskvöldi að spyrja hvort Kringlan c opin).

Fínt með þvottavélina samt... er hægt að taka upp á hana líka?

GK, 3.4.2007 kl. 15:07

6 Smámynd: mojo-jojo

takk mæja,

hehe og ho ho Gk

mojo-jojo, 3.4.2007 kl. 23:30

7 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

þú ert svo steiktur með þessar kringluferðir þínar, ég hélt ég myndi gubba í bílferðinni í þynnkunni á laugardaginn.

En kvöldið var fínt á laugardaginn.. takk fyrir góða rétti

Guðmundur Marteinn Hannesson, 4.4.2007 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Tónlistarspilari

Band of Horses - The Funeral

Höfundur

mojo-jojo
mojo-jojo
Ég er svarthvítur með hatt og sést bara á hlið

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Verklegumyndirnarmínar063[1]
  • hilton
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 379

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband