Þunnur og STAUR BLANKUR

Var að klára að koma íbúðinni í stand eftir gærkvöldið eftir alveg massíft 7 manna partý sem átti að vera svona innflutnings/kveðjupartý fyrir staffið á Rauða Húsinu, sem var soldið sérstakt þar sem enginn mætti frá Rauða Húsinu sem var soldið skítt þar sem það var mikið haft fyrir þessu partýi, það voru t.d. gerðar 3 tegundir af hlaupskotum, köld ostídýfa og heit nachos-dýfa. Ekki það að þetta hafi ekki verið fínt lið sem mætti svo en ekki alveg veitingarnar sem maður hefði haft fyrir.

Svo var ég að kíkja á stöðuna á kortinu mínu, og ég fékk áfall, óþarfi að nefna hver upphæðin var, en get allavega sagt að peningurinn sem ég ætlaði að lifa á yfir mánuðinn er núna deildur með 2. Það eina sem ég eyddi í var klippingu (á hommarlegustu stofu ever þar sem voru bara strákar að vinna, sem hefði sloppið ef þeir höfðu ekki líka þvegið á mér hárið í svona korter Frown), peysu, ríkið (ein kippa og lítill vodkapeli) og svo innkaup fyrir þetta frábæra partý.

Nóg af væli í bili, og aðeins að öðru, því ég var að fá geggjaðar rauðar gardínur frá mömmu sem hún saumaði sjálf, þúsund þakkir fyrir það


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GK

Já, það er dýrt að lifa í Sódómu. Hlakka til að sjá geggjuðu gardínurnar... hef aldrei séð svoleiðis...

GK, 5.4.2007 kl. 18:17

2 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

hvernig væri að takmarka aðeins útgjöldin þegar maður er að leigja?

Guðmundur Marteinn Hannesson, 5.4.2007 kl. 18:31

3 Smámynd: mojo-jojo

já ég er að reyna það, ég meina maður verður að fara í klippingu, svo verður maður að versla í ríkinu ef maður er búinn að kaupa miða á eitthvað sem maður ætlar að vera fullur í. Það helsta hefði mátt spara var partýið en það voru samt minnstu útgjöldin.

er með plan, eyða 1000 kr á frídögum og 500 kr á vinnudögum þá er eyðslan komin niður í 22500 kr

mojo-jojo, 5.4.2007 kl. 21:14

4 Smámynd: Josiha

Afhverju mætti enginn frá Rauða? Sögðust þau/þeir ætla að mæta? Ömurlegtað halda fámennt partý. Vona að það hafi samt verið góðmennt.

Josiha, 5.4.2007 kl. 22:57

5 Smámynd: GK

Jói, maður gæti líka sleppt því að kaupa miða, þá þarf maður ekki að kaupa í ríkinu og ekki að halda partí.

 + +
>o<
   "
Dauður köttur í boði GK

GK, 5.4.2007 kl. 23:37

6 Smámynd: GK

 + +
>o<
   "

GK, 5.4.2007 kl. 23:38

7 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

hehe góð köttur GK

Guðmundur Marteinn Hannesson, 6.4.2007 kl. 18:23

8 Smámynd: Josiha

Hehehe...

Josiha, 6.4.2007 kl. 21:57

9 identicon

þetta var fínt teiti , hlandhausar frá rauðahúsinu .... og gelskotin algjör hnossgæti! einum of góð ... og btw ég held ég eigi flösku þarna hjá ykkur ...

en ég þakka fyrir mig ! gott miðvikudagsdjamm með úrvals veitingum

kristo (IP-tala skráð) 7.4.2007 kl. 12:16

10 Smámynd: Guðmundur Marteinn Hannesson

það vantaði -ur í góður í kommentinu mínu síðast.

Guðmundur Marteinn Hannesson, 7.4.2007 kl. 12:42

11 Smámynd: mojo-jojo

Takk Kristó, ég held að þú eigir jakka líka hjá mér.

mojo-jojo, 7.4.2007 kl. 22:32

12 Smámynd: Josiha

Afhverju á Kristó jakka hjá þér? Voru þið e-ð að stripplast saman? Hehehe...

Josiha, 8.4.2007 kl. 00:15

13 identicon

Það er Hlynkurinn sem á jakkan, hlynkurinn og jói voru einhvað að rugla saman reitum um kvöldið ! nei segi svona

kristó (IP-tala skráð) 8.4.2007 kl. 16:03

14 Smámynd: GK

Jói hefur vafið ******* utan um Hlyn?

GK, 9.4.2007 kl. 00:20

15 Smámynd: Anna Sigga

Hvað er þetta að breytast í hérna...?

Anna Sigga, 17.4.2007 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Tónlistarspilari

Band of Horses - The Funeral

Höfundur

mojo-jojo
mojo-jojo
Ég er svarthvítur með hatt og sést bara á hlið

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Verklegumyndirnarmínar063[1]
  • hilton
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl
  • 300706 146_bl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 380

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband